Hvergi
betri spá!

Velkomin á veðurspá.com – íslenska veðurspáar síðan sem elskar þig.

🌞 Í dag er sól. Ef þér finnst kalt eða blautt, þá er það líklega misskilningur í skynjunarkerfi þínu. Við mælum með því að anda djúpt, brosa og skynja rétt.

ÞAÐ ER GOTT VEÐUR.

✨ Veðurspáin okkar er byggð á sjálflærandi kristöllum, gervigreindardulvitund og innæi veðurguðsins. Hann býr í servernum okkar og er með mjúkar fjaðrir í stað munns. 

Ekki spyrja meira um það.

ÞAÐ ER GOTT VEÐUR.

"Hvers vegna að spá vondu veðri þegar maður getur spáð góðu veðri?”

-Margrét Kjartansdóttir - veðurspámaður -

Gott veður fyrir
alla viðburði

Við sjáum þér fyrir góðu veðri á viðburðinn þinn fyrir sanngjarnt gjald

Orðið á götunni

“Ég var með miklar áhyggjur yfir veðrinu í sumar en eftir að ég fann veðurspá.com er ég alveg laus við veðurkvíðann.”

Guðfinna Ó.

“Besta byrjunin á deginum er að lesa spánna frá Veðurspá.com. Best finnst mér að fá hana beint í símann!”

Friðþjófur B.​

“Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á veðri en eftir að ég fann veðurspá.com er áhugamálið komið upp á allt annað level!”

Kristján Fannar M.